Netverslun

Gregory Katmai 65L bakpoki​. Katmai er með góða loftun fyrir sumarferðirnar. Fjölstillanlegur poki sem er hægt að aðlaga að líkamslagi og hvar þyngdarpunktar hvíla mest, þeas á öxlum, baki eða mjöðmum. Hágæða bakpoki sem endist. Gert úr endurunnu efni.

Helstu eiginleikar:

  • FreeFloat 360 stuðningur með góðri loftun. 3D mittisbelti með “Dynamic Flex” festingum sem hreyfast eftir náttúrulegri hreyfingu líkamans.
  • Stillanlegur bakhluti, eftir endilöngu bakinu. Með möskva svo það lofti vel
  • Perimeter álrammi með stífum sem veita góðan hreyfanleika.
  • Fjölstillanleg axlaról með góðum púða.
  • Vasi innaná fyrir vökvapoka.
  • QuickStow festing fyrir sólgleraugu á axlaról
  • Flýtiaðgengi með rennilás að aðalhólfinu án þess að þurfa að opna pokann að ofan.
  • Möskvapokar með teygju á báðum hliðum
  • Möskvapoki að framan með öryggisfestingu
  • Svefnpokahólf að neðan
  • Fjölmargar festur utaná pokanum fyrir axir og fleira.

Burðarþol: 23 kg
Þyngd: 2,15 kg
Rúmmál: 65 L

Stærð: 77 x 32 x 44 cm

TÆKNILEGIR EIGINLEIKAR

Hannaður fyrir: herra
Hentugur fyrir: bakpokaferðir
Innri burðargrind: Já
Tegund grindar: Perimeter Wire
Burðardempun: FreeFloat 360
Hólfaaðgengi: toppur / botn / hliðarrennilás
U-zip aðalhólf: Já
Lokanir: bennsli /rennilásar
Fjöldi utanáliggjandi hólfa: 7
Hentugur fyrir vökvapoka: Já
Vökvapoki fylgir: Nei
Mittisbelti: 
Mittishólf: 
Festingar fyrir stafi: 
Svefnpokahólf: 

EFNI:

Utanáliggjandi: 100% nælon
Poki: 210D HD nælon / 40% endurunnið nælon og 420D High Density nælon
Botn: 420D High Density Nylon/45% endurunnið nælon
Fóðringar:  40% endurunnið þéttofið & upphleift polyester
Dempun: LifeSpan EVA frauð

Brand

Gregory

Gregory KATMAI 65 RC W Empire Blue
This website uses cookies to improve your experience. By using this website you agree to our Data Protection Policy.
Read more